|
|
03.10.2008 10:03:56 / Sunna P.
Ok fyrir utan að geta ekki stýrt bílnum mínum í þessu veðri, þá er ég samt að eeeelska það, erum við að grínast með gærkvöldið! Fyrir þá sem hafa hangið með mér síðustu daga þá vitið þið að ég var komin í jólagírinn fyrir nokkrum dögum, og núna er kominn snjór... now BRING ON CHRISTMAS! Ég er allt of snemma í þessu, en mig langar bara að fara að baka smákökur og búa til snjókarl.Call me if you want to join
»
24.09.2008 19:43:57 / Sunna P.
Sælar,
Verkefni dagsins í dag voru: i - sofa út ii - mæta í vinnu iii - taka upp fyrri hluta öryggismyndbands fyrir vinnuna iv - kaupa miða á RIFF (Reykjavík International Film Festival)
Nú er ég orðin hrikalega spennt að koma mér á kvikmyndahátíð! Keypti mér passa sem hleypir mér inn á allar myndir og alla fyrirlestra. Það eru nokkur námskeið líka sem ég er mjög spennt að fara á. Annars er mest lítið að frétta, er að passa húsið f. ma og pa á meðan þau eru úti, og svo fer bara atvinnuleit að hefjast! Ef þið vitið um e-ð sniðugt að gerast í kvikmyndabransanum þar sem gæti vantað "runner" þá endilega látið mig vita. Vonast til að hitta ykkur öll í blússandi fíling sometime very very soon.
Kiss kiss -Sunny G
»
08.09.2008 11:27:02 / Sunna P.
Já sæll, Loksins get ég bloggað, er búin að reyna og reyna en þetta helvíti vildi ekki virka. Nú er orðið vel langt síðan að ég bloggaði, en hér er smá update: Nú þar sem Ósk og Toby og litli Pétur Thomas eru að yfirgefa landið (sem ég er ekki beint sátt við) þá fer ég að flytja aftur á Njálsgötuna. Er enn að vinna í hvalnum, en er með augun og eyrun opin fyrir e-u öðru, helst tengt kvikmyndum. Er búin að fara til London að útskrifast og er officially orðin fullorðin manneskja. Thelma er flutt á Hóla og mun ég sakna hennar, enda búnar að vera roomies í í einn og hálfan mánuð, en henni líður vel þarna og vonandi get ég kíkt í heimsókn eftir ekki svo langan tíma  Ég er á leiðinni að fara að kveðja fólkið mitt á Njálsgötunni, og fer svo kannski að vinna á eftir, er svo laus í kvöld ef e-r langar á kaffihús eða e-ð... Afmæli hjá Söru J á fös og svo ætla ég að vera með útskriftaparty á lau. svo skrifið það í dagbókina og mætið eldhress hmmkay?  xxx -Sunny G
»
15.08.2008 19:55:52 / Sunna P.
Jæja krakkar þá er ég flutt aftur í Sóltúnið eftir stutt stopp á Njálsgötunni. Var að koma úr nuddi í boði vinnunnar sem var e-ð sem ég var að upplifa í fyrsta sinn! Nú er samstarfsfélagi minn búinn að klæða mig úr brjóstahaldaranum og klípa soldið vel í rassinn á mér.... hmmmm awkward....... nei nei Nú er Ósky komin á spítalann og við eigum vona á nýjum fjölskyldumeðlim núna innan sólarhrings (vonandi!!!)  Sjáumst á tjúttinu í 101 -Sunny G
»
23.07.2008 13:47:29 / Sunna P.
Jæja krakkar þá er maður í fríi og með internetið, þá er bara eitt í stöðunni og það er að skella upp einu bloggi fyrir landann. Nú vitið þið að ég er búin að vera á soldið miklu flakki núna undanfarið, og komin inn á enn eitt heimilið hérna núna! En fór að hugsa þetta ár er búið að vera mjög skemmtilegt ferðaár. Byrjaði til dæmis árið á hóteli í Ölpunum, og fór þaðan heim til mín á Íslandi. Þaðan í heimili mitt í London. Aftur heim, og aftur út, svo til Milano... Nú er ég búin að sitja kyrr hérna á klakanum í ca. 2 mánuði, en flakkið heldur áfram. Er búin að búa á Ránargötunni, Njálsgötunni og núna Sóltúninu! Þetta er eins og hálfgert ferðalag og ég er mikið að fíla þennan heimilisleysingja lífsstíl.
Nú að öðrum málum, eru einhverjir til í roadtrip yfir versló? Annars er pæling að skella sér til eyja þar sem flestir sem ég þekki verða þar. Ég losna úr vinnu á fimmtudegi og er að spá í að taka mánudaginn í frí... what say you?
Kv. Sunnslan ykkar
»
17.06.2008 20:55:57 / Sunna P.
Er ekki með internet, get ekki bloggað. Annars er svosem mest lítið að frétta af mér. Alltaf að vinna og hef ekki tíma til að sinna neinu svosem. Búin að koma upp ágætis heimili á Njallanum, eins og þið hafið flest séð held ég. Ósky var að koma heim í gær, og Kiddi líka á landinu svo það verður e-ð skemmtilegt matarboð hérna heima annað kvöld methinks. Annars er ég að vinna eins og crazylady og það þykir mér bara hið besta mál svosem. Vil óska Kristrúnu litlu frænku Svövu innilega til hamingju með skírnina og einnig allri hennar familiu. Svo vil ég líka óska Söru enn og aftur til hamingju með útskriftina, og Kötu og Emi til hamingju með Ítalina í dag, nice nice. Smell ya later x
»
30.05.2008 15:50:32 / Sunna P.
Vá ég ætlaði að blogga, en eina sem ég er búin að gera síðan ég kom heim er að vinna!! Work work work.... næ jafnvel 170 tímum fyrir mánaðamót, sem ég geri yfirleitt á heilum mánuði, en þetta tók ekki nema 2 vikur! Craziness....
Það virðast sem draumar mínir eru að rætast þessa dagana, þar sem á mánudaginn dreymdi mig hnúfubak, og hann kom, eins og hann hefur gert áður eftir draumana mína. Hann kom meir að segja með vin á miðvikudaginn, og enn annan vin í gær... 3 hnúbbar, það er ekkert annað!! Ég er að spá í að láta mig dreyma um lottópeninga og kannski kærasta næst.
Orðið smá sorglegt hjá manni þegar maður er orðinn svona obsessed af hnúfubaknum.... skipstjórinn sagði við mig í dag að mig vantaði bara kærasta, þetta er alveg rétt hjá honum.
Karlmannsleysið alveg að fara með mann! En allt í góðu, gaman í vinnunni og svona. Þreytt... me go now.... ok
bæbæ
sunny g
»
19.05.2008 17:48:17 / Sunna P.
Jæja, ég slapp frá Englandi heil á húfi eftir dash-scary atburði síðustu vikunnar. Var í sólbaði með fullt af fólki í London Fields, sem er garður rétt hjá heimili mínu í hinni alræmdu borg óttans, London. Við sátum þarna svona 15 saman með brauð og osta og drykki í frábærum fílingi ásamt ca. 1000 öðrum sem sátu þarna í garðinum. Allt í einu kemur þyrla og þykir mér hún fljúga frekar lágt. Á næstu augnablikum lendir hún svona 70m frá okkur, og þá sjáum við að þetta er sjúkraþyrla. Þá hafði e-r verið skotinn þarna í næstu götu frá okkur. Tveimur dögum seinna erum við aftur í garðinum í sólbaði, þetta skiptið erum við að grilla steik og njóta veðursins. Þá kemur lögregluþyrla og flýgur hring eftir hring yfir London Fields. Þá fréttum við aðeins seinna að það var kona stungin á Broadway Market, sem er gatan sem ég labba til að komast að London Fields. Frábært! 2 drepnir á 3 dögum. Ég fer svo að segja Kötu og Stefáni þessar hræðilegu sögur þegar þau koma til mín 3 dögum eftir seinna morðið. Við röltum niður í bæ og kíkjum í búðir, sjáum að það sé girt af smá svæði fyrir utan Topshop á Oxford Street. Bjuggumst nú bara við smá umferðarslysi þar sem e-r var þarna á vespu. Nei nei, heyrum það um kvöldið að enn og aftur var e-r drepinn um hábjartan dag innan við nokkurra hundruð metra frá mér.... ég er bara ansi heppin að vera á lífi! En nú er ég komin heim og finnst heldur ólíklegt að ég lendi í þessum aðstæðum hér. En þá að næsta máli. Ég kom s.s heim á miðvikudaginn, og er bara búin að vera hrikalega lasin síðan ég kom! Svo er ekki búin að ná að hitta neinn nema fjölskyldu og einhverja nokkra (mjög heppna) vini. En ég er öll að koma til að stefnan er að horfa á e-ð Eurovision drasl og éta einhverja Megavikupizzur með ykkur á morgun og fram að aðal keppninni! Gaman Saman! Hlakka geðveikt til að hitta ykkur öll, og svo tökum við e-ð gott tjútt um helgina  Until then, -Sunny G xxx
»
29.04.2008 00:23:20 / Sunna P.
Herro herro! Eins og titillinn gefur til kynna, er allt svona upp og niður hérna. Er búin að eiga yndislega helgi hérna í London, en alltaf að fatta hvað verður erfitt að yfirgefa þetta allt saman, enda búin að eignast ótrúlega góða vini, gott heimili og gott líf. En nú er skólinn búinn og mikil fagnaðarlæti voru hér um helgina. Var með SS pylsuparty á föstudaginn sem var mikið stuð, og átti svo sólríkan og fallegan laugardag úti með öllu liðinu. Heyrði þá líka í mömmu og pabba sem hringdu til að óska mér "til hamingju með áfangann". Mér er hugsað til þeirra núna þar sem þau hafa þurft að bíða í marga klukkutíma á flugvellinum í Berlín. Ætlaði að hafa þetta lengra blogg og skemmtilegra, en varð skyndilega þreytt og ætla frekar að sofa. Ciao for now  -Sun
»
24.04.2008 12:13:16 / Sunna P.
Jæja, þá er maður búin að skrifa næstum 9000 orð á síðustu dögum. Rosa pressa, en þetta er allt að taka enda. Þarf að klára ritgerðirnar í dag, sem er ekkert mál, enda búin að skrifa 90% af þeim nú þegar. Er reyndar dottin í smá svona laid back fílíng, því eins og þið vitið flest, þá vinn ég best undir mikilli pressu og nú hef ég sólarhring til að taka lokasprettinn. Annars í fréttum héðan er bara allt frábært, búin að vera lokuð inni í herbergi í rúmlega viku núna, fyrir utan matarboð sem ég kíkti í á föstudaginn til Ingibjargar frænku. Það er komið svo gott veður hérna og ég er ekkert búin að fá að njóta þess, svo ég verð í rosa góðum fílíng á morgun í 17 stiga hita, búin með ritgerðir og líklega að skála við krakkana i skólanum klukkan 2 á morgun! Svo annað kvöld tekur við pylsupartyið ógurlega, fullt af íslenskum skvísum að fara að mæta í SS pylsu extravaganza. Ætli verði ekki blandaðir nokkrir kokteilar líka  Orðin rosa spennt að hitta Kötu og Stebba í Mílanó í næstu viku, þetta verður æðislegt, Kata er víst byrjuð að plana dagskrána svo ég efast ekki um að það verði farið vel með mig þarna úti í Lúxusnum hjá þeim. Vonandi verður sólin komin hátt á loft og þá get ég komið heim heltönuð. Er reyndar smá kvíðin að fá Söru P í pylsupartyíð á morgun, hún er náttla búin að vera úti á Flórída og ég lokuð inni í herberginu mínu svo það verður smá litamismunur á okkur skvísunum! Verð komin heim eftir tæplega 3 vikur, hlakka til að sjá ykkur  -Sunny G samkvæmt photoshop mun þetta líta ca svona út:
»
21.04.2008 21:38:41 / Sunna P.
Ég fékk náttla fyndnasta e-mail í heiminum áðan! Þið sem hafið verið hérna í heimsókn hjá okkur og dvalið yfir Þriðjudagskvöld, vita að það eru Pubquiz/Karaoke kvöld hér. Við erum allt að 20 manns sem mætum þarna, yfirleitt samt svona 5-10 stykki. Þið sem hafið verið svo heppin að upplifa þessi vikulegu frábærheit, þekkið þá kannski 'Karaoke gaurinn' sem er sá sem stjórnar öllu þarna. Hann sendi mér mail í dag, sem hljóðar svona:
Hey Sunna,
This is Mike from Hot Breath Karaoke. Me an Jennifer as well as doing the karaoke at the Legion also put on shows once a month at the Bethnal Green Working Men's Club (we are doing one this Friday called Dance Party 2000). Well, we do a massive Eurovision show every year and we were wondering if you wanted to be involved. Last year it was one of the biggest and best shows we did. It's like a scaled down version of the Real thing. We put together 7 acts representing 7 countries. They all performed on the night and then the audience voted for their favourites. Thwe votes are counted and then relayed via "sattellite" link up. It really was an awesome show. We shot full videos for all the acts and they performed along to their video (I represented Spain and sang a ballad in Spanish!!).
Anyway, we are looking for people to take part in this years show and need enthuiastic people who like performing and were wondering if you might wanna be in the show!!Perhaps we could work out a song in Icelandic!! Anyway, have a think about it and probably see you soon at karaoke.
Mike
Sko.......... ef þetta er ekki það fyndnasta í heimi þá veit ég ekki hvað. En ég held ég verði farin heim þegar þetta er, því miður. En gott að vita að maður er í uppáhaldi hjá kallinum, enda mikill snillingur. Aftur að ritgerðaskrifum
-Sunnslan ykkar xx
»
10.04.2008 23:57:49 / Sunna P.
Ég er nýlega orðin ástfangin, eins og þið sáuð kannski á Stonerz blogginu þá er ég ástfangin af Javier Bardem, en þetta er dýpri ást sem ég hef fundið... ég er orðin ástfangin af iPodinum mínum sem ég fékk í afmælisgjöf (að eigin ósk) frá elsku foreldrum mínum!! Ég get ekki lifað án hans þessa dagana, hann er besti vinur minn og hinn besti félagi, kemur með mér hvert sem ég fer og fer lítið fyrir honum. Héðan úr Londonborg er allt gott að frétta, fór í heimsókn til Þóru vinkonu í gær og þar var einmitt Inga Maren að gista hjá henni þá nótt svo gaman að spjalla við þær báðar! Geðveikt flott íbúð sem Alla og Þóra eru komnar með. Við Sara vinkona kíktum aðeins út í kvöld, alveg yndislegt. En svo tekur alvaran við á morgun eða hinn VERÐ ég að byrja að skrifa!! En held það sé kannski sundferð í fyrramálið, eða ef ég vakna seint kannski kíki frekar í Jóga, enda brennur það mun fleiri kaloríur og manni líður eins og gull þegar maður labbar út! Takk annars æðislega fyrir vikuna heima, ótrúlega gaman að hitta ykkur öll, og ótrúlega ánægð með ykkur sem kannski höfðuð ekki mikinn tíma, en gerðuð tíma til að hitta Sunnsluna ykkar, I love you  Vonandi verður þetta eins og alltaf, freakin' frábært sumar í sumar! Aðeins 5 vikur í að ég 'flytji heim'. Ég segi það innan gæsalappa þar sem við Svava erum nokkuð vissar um að yfirgefa land eftir áramót  Much love -Sunnslið xxxxx
»
21.03.2008 15:45:47 / Sunna P.
Jæja þá er ég officially búin í skólanum! Ritgerðaskrif taka við núna, en ekki fyrr en eftir páska!! Í kvöld verður páskaskreytingaparty hjá Öllu þar sem við ætlum að búa til life-size portrait of Jesus, músastiga og páskaunga svo eitthvað sé nefnt. Dolphin bíður okkar seinna um kvöldið (tj kannast við dolphin sko)... en var samt að hugsa það var maður drepinn á Mare st. í gær, sem er gatan sem dolphin er á..... hmm, sjáum til. Á morgun verður bara chillað held ég og kíkt í Sainsbury's að undirbúa Sunnudaginn, en þá verður páskaboð hjá Öllu... íslenskt lambalæri, malt og appelsín, páskaegg frá Nóa.... alles sko!  Gleðilega páska allirsaman, kem með páskasöguna þegar þessi mikla páskapartyhelgi er liðin xxxx -sun
»
10.03.2008 19:13:46 / Sunna P.
Halló krakkar, nú er mín aldeilis í góðu skapi. Búið að vera heví fjör undanfarið, party party party. En nú er maður orðinn 1 ári eldri og haldiði að ég hafi ekki byrjað í Yoga, eða frekar Bikram Yoga. Þetta eru 90 mín tímar sem eru haldnir í 40°C hita, svo þetta er soldið mikið púl, en hressandi svona eftirá. Er reyndar bara búin að fara einusinni, en það var á föstudaginn.
Ég fékk einkunnir í dag sem ég var mjög ánægð með, og mjög hissa, fékk hærri einkunn fyrir seinni ritgerðina sem mér fannst mun verr... svona er maður vitlaus. Fekk s.s. 58, og 65 sem er 2.2 og 2.1. (önnur önnur einkunn og fyrsta önnur einkunn). Very nice
Bið að heilsa úr storminum xxx
-Sunnslið
»
03.03.2008 20:27:02 / Sunna P.
Halló halló, it's me, i'm alive!! Þá er ég loksins búin að klippa myndina og er hún núna í hjóðvinnslu. Ég var að fá ávísun í póstinum fyrir 100 pund, sem ég vann á Xfm í London, eins og þið vitið kannski, þá er ég fræg fyrir að vinna allskonar dót á Xfm. En þetta er fyrsta skiptið sem ég vinn peninga! Mjög gott þar sem það er akkúrat það sem mig vantar núna. Þórunn var svo yndisleg að bjóða mér á NME awards show (eða frekar tónleikana eftirá) síðasta fimmtudag, þar sem við mingluðum við fræga fólkið á barnum og sáum eiginlega ekki tónleikana sjálfa. Enduðum í eftirparty á rosa fínu hóteli hérna í hverfinu og hittum þar ýmislegt fólk og sáum ýmislegt skrítið. Long story short (nenni ekki að skrifa hana alla hér) þá endaði ég með eftirparty heima, en í lok kvöldsins vorum við 3 eftir. Ég, Þórunn og Alex Kapranos, söngvari Franz Ferdinand, og haldiði að mín hafi ekki poppað og skellt Mighty Boosh í dvd spilarann. Þannig endaði kvöldið um kl 7 á föstudagsmorgni. Föstudaginn var ég búin að bjóða hellingsliði í Goth-afmælisparty. Rauk á lappir um 12 leytið ennþá hálf full svona, og dreif mig í skólann, kláraði að klippa, skrifaði á dvd og dreif mig í búðina að kaupa í bolluna. Fór heim, tók til eftir party gærkvöldsins og undirbjó næsta party. Fólk mætti frekar seint og var mesta stemmningin ca. um miðnæti en þá byrjaði ég (og Þórunn) að finna fyrir kvöldinu áður og vorum geispandi allt kvöldið. Flestir farnir um 2, og síðasta fólk út um 3. Þannig endaði þetta sem mjög steikt goth-chill kvöld.... samt sem áður rosa fyndið! Laugardagur var Þorrablót, steikt as always. Ekkert slúður þar. Vonandi er jafnmikið fjör hjá ykkur  -Sunnsli
»
Síður: 1 2 3 ... 32
|
Heimsóknir
Í dag: 14 Alls: 69753
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 3 október
|